- 24 stk.
- 17.07.2024
18. júlí 2024 – Mikið hefur verið um hval í Eyjafirði í sumar. „Fyrir utan fyrstu vikuna í júní í hressandi norðanátt, hefur sumarið verið mjög fínt,“ segir Sara Sigmundsdóttir, framkvæmdastjóri hvalaskoðunarfyrirtækisins Akureyri whale watching. „Það er nóg að gera og hvalirnir eru búnir að vera nálægt bænum þannig að við höfum ekki þurft að sigla langt. Það er voðalega gott, sparar tíma og olíu.“ – Myndir: Þorgeir Baldursson