- 44 stk.
- 28.05.2021
27. maí 2021 - Lokaumferð efstu deildar Íslandsmóts karla í handbolta, Olísdeildarinnar, KA - Þór 19:19. Ótrúlegur leikur; Þór komst í 1:0 eftir 10 mínútur og KA jafnaði 55 sekúndum síðar. Mikil barátta og stemningin rafmögnuð. Upp úr sauð í lokin; Þórsarinn Þórður Tandri Ágústsson skoraði þegar 10 sekúndur voru eftir, og hefði sennilega tryggt liði sínu óvæntan sigur, en markið stóð ekki heldur fékk liðið aukakast, sem var furðulegur dómur! Ljósmyndir: Skapti Hallgrímsson