- 29 stk.
- 03.02.2023
28. janúar 2023 – Fæðingardegi Robert Burns, hins ástsæla þjóðskálds Skota, hefur lengi verið fagnað víða um heim og menningarbærinn Akureyri er þar að sjálfsögðu engin undantekning. Maltviskífélag Norðurlands stóð í kvöld fyrir Burns Night eins og undanfarin ár, samkomu sem stundum hefur verið nefnd Burns-nótt; þar er sungið, dreypt á viskíi og síðast en ekki síst etið haggis; skoskur réttur sem svipar til sláturs, en er betri að margra mati. – Ljósmyndir: Skapti Hallgrímsson