- 29 stk.
- 30.06.2024
29. júní 2024 – Árlegur Flugdagur Flugsafns Íslands á Akureyri fór fram í blíðskaparveðri og mikill fjöldi fólks kom á staðinn. Hátt í 30 flugvélar voru þar til sýnis og á annan tug tók þátt í flugsýningunni. TF-EIR, þyrla Landhelgisgæslunnar, var á staðnum, kempur á nokkrum listflugvélum sýndu listir sínar eins og venjulega, en fréttnæmast þegar fram í sækir mun væntanlega þykja að rafmagnsflugvél tók á loft í fyrsta skipti á Akureyri.