- 64 stk.
- 13.08.2023
12. ágúst 2023 – Fiskidagstónleikarnir á 20 ára afmæli þessarar miklu fjölskylduhátíðar, Fiskidagsins mikla, voru stórbrotnir. Talið er að um 40 þúsund manns hafi verið á Dalvík og um 25 þúsund á tónleikunum á hafnarsvæðinu um kvöldið. Skemmtunin lék líklega engan ósnortinn, hvert magnaða atriðið rak annað og fjöldinn skemmti sér konunglega. Punkturinn yfir i-ið var svo stórglæsileg flugeldasýning upp úr miðnætti.