- 23 stk.
- 11.08.2024
10. ágúst 2024 – Aron Einar Gunnarsson, kunnasti knattspyrnumaður í sögu Þórs, snéri heim á ný í dag þegar hann lék með félaginu í fyrsta skipti í 18 ár. Þór fékk Njarðvík í heimsókn í Lengjudeildinni, Aron byrjaði á varamannabekknum en kom inn á þegar seinni hálfleikur var um það bil hálfnaður. Staðan var þá 2:0 fyrir gestina, en Þórsarar jöfnuðu og leiknum lauk 2:2. Aron lagði upp seinna markið með frábærri sendingu. Myndir: Þórir Ó. Tryggvason