- 42 stk.
- 01.05.2023
1. maí 2023 – Ungmennafélag Akureyrar stóð fyrir hlaupinu að vanda á Þórssvæðinu í Glerárhverfi þar sem UFA er einnig með aðstöðu. Tæplega 100 leikskólabörn hlupu einn hring á frjálsíþróttavellinum, 400 metra, eftir góða upphitun Unnars Vilhjálmssonar frjálsíþróttaþjálfara. Í grunnskólahlaupi tóku svo þátt 200 krakkar og 5 km hlupu 30 krakkar og 20 fullorðnir. Myndirnar eru af leikskóla- og grunnskólabörnunum. Ljósmyndir: Skapti Hallgrímsson