Fara í efni
Íþróttir

Stefanía Daney í 10. sæti á HM

Stefanía Daney Guðmundsdóttir. Aðsend mynd.
Frjálsíþróttakonan Stefanía Daney Guðmundsdóttir úr íþróttafélaginu Eik/UFA keppti á heimsmeistaramóti fatlaðra í frjálsíþróttum sem fram fór í París um liðna helgi og náði þar mjög góðum árangri. Stefanía Daney stökk 5,09 metra í langstökki, varð í 10. sæti og náði um leið lágmarki inn á ólympíumót fatlaðra, Paralympics, á næsta ári.