Landsliðskona frá Filippseyjum til Þórs/KA
Knattspyrnulið Þórs/KA hefur samið við Dominique Randle, tæplega þrítugan miðvörð frá Filippseyjum. Þetta kemur fram á vef Þórs/KA og heimasíðu Þórs.
Randle er landsliðsfélagi Tahnai Annis sem samdi við Þór/KA á ný á dögunum, en Tahnai lék með Akureyrarliðinu við góðan orðstír 2012 til 2014.
Landslið Filippseyja tekur nú þátt í Pinatar Cup á Spáni og mætir einmitt Íslandi í lokaleik riðilsins sem hófst kl. 19:30 í kvöld.
Dominique spilaði með liði UCLA í Los Angeles á háskólaárunum, en hún útskrifaðist þaðan 2017.
„Dominique er reynslumikill varnarmaður sem kemur til með að styrkja okkur mikið,“ segir Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þórs/KA. „Það hefur áður komið fram að við erum að leita eftir reynslu og aldri við styrkingu á liðinu fyrir tímabilið. Dominique færir okkur þessa þætti sem og gæði til að verjast og halda í boltann. Hún og Tahnai þekkjast vel úr landsliði Filippseyja og eiga sinn þátt í því að liðið er að fara í fyrsta sinn í lokakeppni HM.“
Leik Íslands og Filippseyja er streymt á KSÍ TV og Elevensports.com. Randle er númer 3 í liði Filippseyja.