Fara í efni
Fréttir

Styrktartónleikar fyrir móður Kolfinnu Eldeyjar

Kammerkórinn Hymnodia heldur í næstu viku styrktartónleika í Akureyrarkirkju fyrir móður Kolfinnu Eldeyjar, litlu stúlkunnar sem fannst látin við Krýsuvíkurveg fyrir skömmu.

„Hymnodia vill styðja við góðan félaga í kórnum og fjölskyldu hans eftir erfiðan missi ungrar stúlku, Kolfinnu Eldeyjar. Fjöldi vina kórsins úr hópi norðlensks tónlistarfólks slæst í för með Hymnodiu á styrktartónleikum sem haldnir verða í Akureyrarkirkju miðvikudagskvöldið 2. október kl. 20,“ segir í tilkynningu frá kórnum.

Aðgangur verður ókeypis en tekið verður á móti frjálsum framlögum í reiðufé og með innleggi á söfnunarreikning.
 

Hymnodia flytur eitt lag við ljóð eftir Hannes Sigurðsson en auk þess koma fram:

  • Anna Skagfjörð
  • Elvý G. Hreinsdóttir
  • Eyþór Ingi Jónsson
  • Guðrún Arngrímsdóttir
  • Hallgrímur Jónas Ómarsson
  • Haukur Pálmason
  • Hildur Eir Bolladóttir
  • Ívar Helgason
  • Jón Þorsteinn Reynisson
  • Jónína Björt Gunnarsdóttir
  • Karlakvartett
  • Kristjana Arngrímsdóttir
  • Magni Ásgeirsson
  • Maja Eir Kristinsdóttir
  • Óskar Pétursson
  • Poppveislan
  • Rakel Hinriksdóttir
  • Rúnar Eff
  • Sigrún Magna Þórsteinsdóttir
  • Stefán Elí
  • Stefán Gunnarsson
  • Sumarliði Helgason
  • Trausti Ingólfsson
  • Valgarður Óli Ómarsson
  • Þórhildur Örvarsdóttir

Bankareikningurinn:

  • 192 - 26 - 21239
  • Kennitala: 170483-4569