Nánar hér á Vísi.
Fréttir
Ráðherra mótfallinn sameiningu MA og VMA
22.09.2023 kl. 13:35

Myndin af Guðmundi Inga birtist með fréttinni á Vísi.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, segir áform Ásmundar Einars Daðasonar, menntamálaráðherra, um sameiningu MA og VMA ekki heillaskref fyrir íslenskt menntakerfi. Þetta kemur í frétt á Vísi.
Félags- og vinnumarkaðsráðherra segir ólíka skóla tryggja meiri fjölbreytileika fyrir nemendur á landsbyggðinni og er mótfallinn sameiningunni.
Guðmundur Ingi, sem er sjálfur MA-ingur og var formaður skólafélagsins Hugins á sínum tíma, er fyrsti samráðherra Ásmundar Einars Daðasonar sem lýsir opinberlega andstöðu við áform hans um sameiningu skólann.