Fréttir
Kjarnorkuknúinn kafbátur í Eyjafirði
25.02.2025 kl. 20:00

Myndir: Landhelgisgæslan
Kjarnorkuknúinn bandarískur kafbátur, USS Delaware, staldraði við í Eyjafirði í dag, þar sem fram fóru áhafnaskipti og þjónusta við kafbátinn. Áhöfnin á varðskipinu Freyju fylgdi kafbátnum um landhelgina og inn að Hrísey. USS Delaware er orrustukafbátur af Virginia-gerð og slíkir kafbátar bera ekki kjarnavopn, segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.
Þetta var sjötta þjónustuheimsókn kjarnorkuknúins kafbáts bandaríska sjóhersins í íslenska landhelgi eða frá því að utanríkisráðherra tilkynnti 18. apríl 2023 að slíkum kafbátum yrði heimilað að hafa stutta viðkomu úti fyrir ströndum Íslands til að taka kost og skipta út hluta áhafnar.
Landhelgisgæsla Íslands leiddi framkvæmd heimsóknarinnar í nánu samstarfi við embætti ríkislögreglustjóra, Geislavarnir ríkisins og varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins í samræmi við settar verklagsreglur.

Heimsóknin tókst vel og er þar helst að þakka nánu samstarfi og samráði hlutaðeigandi stofnana innanlands og góðu samstarfi við bandaríska sjóherinn.
Þjónustuheimsóknirnar eru liður í varnarskuldbindingum Íslands og mikilvægt framlag til sameiginlegra varna Atlantshafsbandalagsins. Framkvæmd þeirra hér við land gerir bandamönnum okkar kleift að tryggja samfellu í eftirliti, stytta viðbragðstíma og senda skilaboð um
viðveru og varnir á Norður-Atlantshafi.
Kafbátar bandalagsríkja og kafbátaleitarvélar, sem meðal annars eru gerðar út frá Keflavíkurflugvelli, gegna mikilvægu hlutverki við eftirlit og stöðuvitund á Norður-Atlantshafi og stuðla þannig að auknu öryggi bandalagsríkja, þar á meðal á hafsvæðinu í kringum Ísland.