Fara í efni
Fréttir

Styðja ungmenni frá efnaminni heimilum

Sigríður Stefánsdóttir og Herdís Helgadóttir frá Velferðarsjóði Eyjafjarðar, Arna Hrönn Skúladóttir, markaðsstjóri Hölds og Steingrímur Birgisson, forstjóri Hölds.

Höldur - Bílaleiga Akureyrar og Velferðarsjóður Eyjafjarðar hafa gert þriggja ára samning vegna íþrótta- og tómstundaiðkunar barna og unglinga. Nýtt úrræði er í farvatninu hjá sjóðnum varðandi stuðning við börn og ungmenni frá efnaminni heimilum og verður fyrirtækið bakhjarl verkefnisins.

„Verkefni tengd samfélagslegri ábyrgð hjá Höldi-Bílaleigu Akureyrar eru mörg og skipa veigamikinn sess í rekstrinum,“ segir í tilkynningu á vef fyrirtækisins. „Fyrirtækið tekur samfélagslega ábyrgð sína alvarlega og styður sem dæmi rausnarlega við íþróttastarf á Íslandi og er í dag með styrktarsamninga við um 110 deildir íþróttafélaga um allt land. Aðgengi allra barna og unglinga að íþrótta- og tómstundastarfi er sameiginlegt verkefni samfélagsins, enda ein allra mikilvægasta forvörnin.“

Velferðarsjóður Eyjafjarðarsvæðis er samstarfsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar, Hjálpræðishersins á Akureyri, Mæðrastyrksnefndar Akureyrar og nágrennis og Rauða krossins við Eyjafjörð. Velferðarsjóðurinn heldur utan um jólaaðstoð og reglubundnar úthlutanir til efnaminni einstaklinga og fjölskyldna á starfssvæði sjóðsins sem er Eyjafjörður, frá Siglufirði til Grenivíkur.

„Nú er í farvatninu nýtt úrræði innan Velferðarsjóðsins en það snýr að stuðningi vegna íþrótta- og tómstundaiðkunar barna og ungmenna frá efnaminni heimilum. Höldur-Bílaleiga Akureyrar er stoltur bakhjarl verkefnisins og gerður hefur verið þriggja ára samningur við Velferðarsjóð Eyjafjarðarsvæðis,“ segir á vef fyrirtækisins.

„Markmið verkefnisins er að draga úr hættu á félagslegri einangrun og að börn og unglingar hætti í íþrótta- og tómstundastarfi vegna fjárhagserfiðleika heimilis. Hægt verður að sækja um sérstakan styrk hjá Velferðarsjóðnum vegna íþrótta- og tómstundaiðkunar barna og unglinga.

Sem dæmi um styrkhæf verkefni má nefna ferðalög vegna þátttöku í íþróttum, tómstundum og menningarstarfi, æfinga- eða skólagjöld vegna tómstundastarfs, keppnir og ferðir á vegum félagsmiðstöðva og klúbba auk búnaðar- og búningakaupa.“