Fara í efni
Fréttir

Götulokanir þriðjudag vegna malbikunar

Hlíðarbraut verður lokuð frá Merkigili að Hlíðarfjallsvegi á morgun, þriðjudaginn 27. ágúst, kl. 9-23 vegna malbikunarframkvæmda. Jafnframt má búast við töfum á umferð um hringtorgið við Hlíðarfjallsveg. Malbikun þar verður unnin í tveimur áföngum og verður umferðarstjórnun meðan á þeirri vinnu stendur. 

Vinnu við Dalsbraut á að ljúka í dag og verður hún opnuð fyrir umferð á ný áður en Hlíðarbraut verður lokað. 

Þessar framkvæmdir hafa áhrif á leiðir strætisvagna sem hér segir:

  • Leiðir 1 og 2 aka aftur um Dalsbraut samkvæmt leiðakerfinu.
  • Leiðir 5 og 6 aka um Dalsbraut á meðan Hlíðarbraut er lokuð.

Fram kemur í tilkynningu frá SVA að búast megi við töfum vegna þessa, bæði hjá strætisvögnum og ferliþjónustu.