Umhverfismál
Spennandi starfamessa í Háskólanum á Akureyri
15.03.2025 kl. 06:00

Hvað í ósköpunum eru þessar ungu konur að skoða? Mynd: Háskólinn á Akureyri
Starfamessa Háskólans á Akureyri er árlegur viðburður þar sem nemendum í 9. og 10. bekk í grunnskólum Akureyrarbæjar og nágrennis er boðið í heimsókn. Þar eru mismunandi starfsstéttum boðið að setja upp kynningarbása og sýna krökkunum hvað starf þeirra snýst um. Einnig er kynnt hvaða færni eða menntun þarf fyrir hin ýmsu störf.
Að þessu sinni fór Starfamessan fram á fimmtudaginn, í hátíðarsal Háskólans og í Miðborg. Silja Jóhannesar Ástudóttir, samskiptastjóri HA, sendi okkur þessar myndir frá deginum.
Er þessi ungi maður fæðingarlæknir í startholunum?