Sveitarstjórnarmál
A-listi fékk meirihluta á Svalbarðsströnd
16.05.2022 kl. 11:55
A-listi fékk 128 atkvæði og 3 menn kjörna í Svalbarðsstrandarhreppi á laugardaginn en Ö-listi fékk 115 atkvæði og 2 menn kjörna.
Í nýrri sveitarstjórn eiga sæti:
- Gestur Jónmundur Jensson A-lista
- Bjarni Þór Guðmunddson Ö-lista
- Anna Karen Úlfarsdóttir A-lista
- Hanna Sigurjónsdóttir Ö-lista
- Ólafur Rúnar Ólafsson A-lista
338 voru á kjörskrá. Á kjörstað greiddu 225 atkvæði og 25 utankjörstaðaatkvæði bárust. Alls kusu því 250 eða 74,0% þeirra sem voru á kjörskrá, 124 karlar og 126 konur, að því er segir á vef sveitarfélagsins. Auðir seðlar voru 7 en enginn ógildur.