Fara í efni
Menning

Norðurlands-Fiðringur í Hofi miðvikudagskvöld

Myndir frá Fiðringi 2023: Sindri Swan og Daníel Starrason

Fiðringur á Norðurlandi verður haldinn í menningarhúsinu Hofi á Akureyri í þriðja sinn annað kvöld, miðvikudagskvöldið 8. maí klukkan 20.00. Skrekkur í Reykjavík og Sjálftinn á Suðurlandi eru fyrirmyndir Fiðrings, segir í tilkynningu. Fiðringur er hæfileikakeppni fyrir nemendur í 8. til 10. bekk grunnskóla og „er dýrmætur vettvangur fyrir unglingana á Norðurlandi eystra til að láta rödd sína heyrast.“

Tíu skólar taka þátt í ár og mætast þeir á úrslitakvöldinu og sýna afrakstur vinnu sinnar á vorönn. Mikil áhersla er lögð á að hugmyndin og útfærslan sé alfarið unglinganna sjálfra og einnig sjá þau um tæknimál og búninga, leikmynd og förðun.

Lýðræði er einn af hornsteinum Fiðrings og unglingarnir taka þátt í öllum ákvarðanatökum,“ segir í tilkynningu frá Fiðringi. „Þannig er valið á listamanni sem skemmtir í dómarahléi ákveðið út frá því hvaða lag ungmennin velja sem Fiðringslag. Í ár kusu krakkarnir lagið Skína með Prettyboitjokko sem mætir á svæðið. Einnig senda þau inn tillögur að baksviðspössum og kjósa svo eina tillögu sem er prentuð út og allir fá um hálsinn.“

Kynnar kvöldsins verða Akureyringurinn Egill Andrason og Helga Salvör Jónsdóttir en þau útskrifast bæði frá LHÍ í vor.

Við lofum algjörri veislu í HOFI næsta miðvikudag. Almenningur getur keypt miða hér – fyllum húsið og hvetjum ungmennin til dáða í listsköpun sinni!

Fiðringur á tix.is

UNGRÚV mun taka upp atriðin og birta þau á sínum miðlum.

Vert er að geta þess SSNE hefur tryggt verkefninu fjármagn til ársins 2026 en verkefnið er á vegum Menningarfélags Akureyrar að frumkvæði Maríu Pálsdóttur leikkonu sem er verkefnastjóri ásamt Heru Jónsdóttur og Kristínu Sóleyju Björnsdóttur.