Fara í efni
Menning

Mennskar bækur á Amtsbókasafninu

Á morgun, laugardag 11. maí, lánar Amtsbókasafnið á Akureyri út mennskar bækur, sem svo eru kallaðar.

„Það er ómetanlegt að geta miðlað mismunandi reynsluheimum í formi samtals,“ segir á vef safnsins. „Á hinu Mennska bókasafni gefst tækifæri til þess að spjalla í um hálftíma við einstaklinga sem standa frammi fyrir ólíkum og mögulega mjög framandi áskorunum og heyra þeirra hlið í þeirra eigin orðum.“

Fyrsta Mennska bókasafnið var opnað í Danmörku árið 2000 og síðan þá hafa viðburðir á vegum þeirra farið fram í 85 löndum. Dæmi um bókatitla sem hafa verið á viðburðum úti í heimi eru til dæmis:

  • ADHD
  • Óvirkur alkóhólisti
  • Kulnun
  • Innflytjandi

Á vef safnsins segir:

Viltu komast að því hvaða mennsku bækur verða í boði?

Kíktu á Amtsbókasafnið á bilinu 13:00-16:00 laugardaginn 11. maí!

Þar verðum við með bókalista í anddyrinu og þið getið tekið frá þá titla sem þið eruð spenntust fyrir ef þeir eru þegar í útláni þegar þið komið.

Fyrstir koma, fyrstir fá. Enginn aðgangseyrir!

Mennska bókasafnið er styrkt af sóknaráætlun SSNE