Fara í efni
Mannlíf

Saint Pete og félagar senda frá sér nýtt lag

Pétur Már Guðmundsson, til hægri, og Hreinn Orri Óðinsson.

Akureyrski tónlistarmaðurinn Pétur Már Guðmundsson – sem kallar sig Saint Pete – sendi skömmu fyrir lok nýliðins árs frá sér lagið Akureyri í félagi við nokkra aðra. 

Pétur og Hreinn Orri Óðinsson hafa unnið saman að tónlist síðustu ár og er Akureyri er fyrsta lagið sem þeir gefa út saman. Auk Hreins Orra fékk Pétur KA-AKÁ, Halldór Kristin Harðarson, og tvíeykið Úlf Úlf til liðs við sig í laginu.

Heyrn er sögu ríkari! Smellið hér til að hlusta á lagið á Spotify.