Fara í efni
Mannlíf

Gísla saga Sigurgeirs um Óskar – MYNDBAND

Ljósmynd: Rakel Hinriksdóttir

Óskar Pétursson söngvarinn ástsæli varð sjötugur á jóladag sem hefur ekki farið framhjá lesendum Akureyri.net. Hátíðarviðtal Rakelar Hinriksdóttur, sem birtist í fjórum hlutum um jólin, vakti mikla athygli enda bráðskemmtilegt og viðbrögðin hafa verið eftir því.

Gísli Sigurgeirsson fyrrverandi fréttamaður sendi Akureyri.net magnað myndband sem hann setti saman í tilefni sjötugsafmælis Óskars. Þar er aldeilis slegið á létta strengi eins og Óskari er lagið og sendingin frá Gísla því og upplagður punktur yfir i-ið í umfjöllun um Skagfirðinginn síkáta!

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ SJÁ MYNDBANDIÐ