Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 180. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa flestar vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.

Hefurðu hugmynd um hvar mynd dagsins er tekin? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar Akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net Athugið að myndin er skorin en neðst í fréttinni sést hún öll.

  • Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Þetta er á Skagaströnd, Höfðakaupstað eins og bærinn var kallaður áður.

Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR