Fara í efni
Fréttir

Skagi kaupir Íslensk verðbréf á 1,6 milljarða

Skagi – móður­fé­lag VÍS, fjárfestingabankans Fossa og SIV eignastýringar – hef­ur und­ir­ritað kaup­samn­ing við hlut­hafa Íslenskra verðbréfa (ÍV) um kaup Skaga á 97,07% hluta­fjár í fé­lag­inu fyr­ir tæpa 1,6 millj­arða króna. Þetta var tilkynnt til Kauphallarinnar í kvöld.

Íslensk verðbréf hafa frá stofnun verið með höfuðstöðvar sínar á Akureyri og horft er til þess að starfsemi félagsins verði þar áfram, „enda er markmið samstæðu Skaga að efla þjónustu við viðskiptavini á Norðurlandi. Eigna- og sjóðastýring ásamt markaðsviðskiptum verða starfrækt innan samstæðu Skaga og samþætt núverandi fjármálastarfsemi eftir að kaupin hafa gengið í gegn,“ segir í tilkynningunni til Kauphallarinnar.

Forsvarsmenn Skaga stefna að því að kaupa hlutafé annarra hlutahafa þannig að Skagi verði eini eigandi Íslenskra verðbréfa.

Jóhann stígur til hliðar

„Kaupverð 97,07% hlutafjár í Íslenskum verðbréfum er 1.598 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að kaupverðið verði greitt með reiðufé, en Skagi hefur val um að greiða allt að fjórðungi kaupverðsins með afhendingu nýs hlutafjár í Skaga,“ segir í tilkynningunni. Fram kemur að fyrirtækjaráðgjöf og sérhæfðar fjárfestingar eru undanskilin í kaupunum.

Jóhann M. Ólafsson, aðaleigandi og forstjóri ÍV, hefur stigið til hliðar og Jón Helgi Pétursson, framkvæmdastjóri ÍV sjóða, hefur tekið tímabundið við sem forstjóri félagsins.

ÍV með 96 milljarða í stýringu

Íslensk verðbréf, sem var stofnað árið 1987, er eitt elsta starfandi fjármálafyrirtæki landsins „og með sterkt og þekkt vörumerki á íslenskum fjármálamarkaði. Félagið býður upp á þjónustu á sviði markaðsviðskipta, eigna- og sjóðastýringar og var með 96 milljarða króna í stýringu um síðustu áramót. Alls voru um 4.000 viðskiptavinir með fjármuni í eignastýringu og vörslu hjá Íslenskum verðbréfum í lok árs 2023,“ segir í áðurnefndri tilkynningu.

„Rík áhersla er lögð á vöxt í kjarnastarfsemi Skaga, þ.e. í trygginga- og fjármálastarfsemi, og kaupin eru því mikilvægur áfangi í vegferð Skaga til þess að styrkja enn frekar grunnstoðir samstæðunnar, með innri og ytri vexti.“

Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands og Samkeppniseftirlitsins.

Mikilvægt skref í frekari uppbyggingu

„Það er mikið gleðiefni að Íslensk verðbréf bætist í hóp öflugra fyrirtækja í samstæðu Skaga. Þessi viðbót mun efla þjónustu við viðskiptavini okkar á Norðurlandi og styrkir stöðu okkar á sviðum eignastýringar og markaðsviðskipta,“ segir Haraldur Þórðarson forstjóri Skaga í tilkynningunni. „Samstæða Skaga er nú þegar með öflugan rekstur á svæðinu en kaupin eru mikilvægt skref í frekari uppbyggingu fyrir norðan. Íslensk verðbréf hafa í hátt í fjóra áratugi boðið upp á framúrskarandi þjónustu á sviði eignastýringar og mun halda því áfram innan samstæðu Skaga.“

Eignir í stýringu hjá Skaga munu nema um 220 milljörðum króna eftir viðskiptin „og við færumst því nær langtímamarkmiðum okkar um vöxt á íslenskum fjármálamarkaði. Við erum líka stolt af því að framboð sjóða hjá Skaga eykst umtalsvert eftir kaupin. Við höfum metnaðarfull markmið um vöxt á íslenskum fjármálamarkaði og kaupin eru mikilvægur áfangi í þeirri vegferð.“

Spennandi tímamót

Jóhann M. Ólafsson, fráfarandi forstjóri Íslenskra verðbréfa, segir um spennandi tímamót að ræða. Hann segir í tilkynningunni til Kauphallarinnar: „Undanfarin ár hefur Björg Capital Management, ásamt öflugum hópi starfsfólks, byggt upp starfsemi Íslenskra verðbréfa í höfuðstöðvum félagsins á Akureyri. Nú hefur Skagi, sem er öflugt fjármálafyrirtæki, séð tækifærið sem felst í því að halda áfram uppbyggingu á fjármálastarfsemi á Norðurlandi. Með sölunni gefst okkur í Björgu Capital Management aukið tækifæri til að efla sérhæfðar fjárfestingar svo sem í fiskeldi og stórþara ásamt öðrum verkefnum og þjónustu er tengjast bláa hagkerfinu. Þetta eru spennandi tímamót hjá okkur en við sjáum mikil tækifæri í því að leiða fjárfestingar, uppbyggingu og ráðgjöf hér á landi og erlendis á komandi árum, enda mikil þekking og reynsla á því sviði sem býr innan okkar raða.“