Fara í efni
Fréttir

Segir mann hafa reynt að lokka barn upp í bíl

Foreldri ungrar stúlku greindi frá því á Facebook síðu Giljahverfis að maður hefði reynt að lokka barnið upp í bíl sinn í dag. Lögreglu hefur verið gert viðvart.

Innlegg viðkomandi, sem skrifar er nafnlaust, er svohljóðandi:

Nú rétt áðan lenti tíu ára dóttir mín í því á leið á fimleikaæfingu í Giljaskóla að maður á nokkuð stórum hvítum bíl með dökkum rúðum (svartklæddur og með svarta húfu) fer úr bílnum sínum við gangbraut í Merkigili og reynir að fá hana upp í bílinn og segist ætla að bjóða henni far en hún nær að hlaupa í burtu. Mögulega er hann ekki enn á sveimi í Giljahverfi en endilega hafið varan á og biðjið börnin ykkar um að fara varlega.