Fréttir
Ekki áramótabrenna á vegum bæjarins
20.12.2021 kl. 14:00
Ákveðið hefur verið að halda ekki áramótabrennur á vegum Akureyrarbæjar að þessu sinni. Þetta kemur fram á vef sveitarfélagsins.
„Ekki er talið skynsamlegt að halda fjöldasamkomur, nú þegar takmarkanir vegna sóttvarna miðast við 50 manns, faraldurinn er í vexti og mikil óvissa um þróunina næstu daga og vikur,“ segir í tilkynningu á vefnum.
„Þetta er í samræmi við ákvarðanir annarra sveitarfélaga, þar á meðal á höfuðborgarsvæðinu. Þrátt fyrir að áramótabrennur fari fram utandyra draga þær að sér fjölda fólks og mikilvægt að sveitarfélög hvetji ekki til hópamyndunar við þessar aðstæður.“