Sjónvarpsþáttaröð fyrir börn unnin á N4
Þættirnir verða sýndir á sunnudagsmorgnum í haust á N4 og verða auk þess aðgengilegir á samfélagsmiðlum kirkjunnar og stöðvarinnar. Handritshöfundar og aðalleikarar eru hjónin Margrét Sverrisdóttir og séra Oddur Bjarni Þorkelsson á Möðruvöllum sem jafnframt semur tónlist ásamt Rósu Ásgeirsdóttur.
Allir sem koma að gerð þáttanna starfa hjá N4 og segist María Björk Ingvadóttir framkvæmdastjóri fyrirtækisins afar þakklát því trausti sem þjóðkirkjan sýni með því að leita til stöðvarinnar um gerð þáttanna; með því sé stigið nýtt og stórt skref í að vinna slíka þætti með fagfólki á landsbyggðunum. Pétur G. Markan samskiptastjóri Þjóðkirkjunnar tekur undir þessi orð og segist hlakka til að fylgjast með framvindu vinnunnar.
„Ég tel boðskapinn í þáttunum mikilvægan enda eru kristin gildi eitthvert besta veganesti sem hver og einn getur tekið með sér út á ævibrautina – út í hinn víða heim og aftur heim. Gildi sem við viljum tileinka okkur þar sem náungakærleikur, umhverfisvernd, manngildi, og samkennd er sterki þráðurinn sem allt hverfist um,“ segir Pétur í tilkynningu. „Svo er það líka svo að það er afar mikilvægt fyrir landsbyggðarstofnun, eins og þjóðkirkjan er, að vinna metnaðarfullt tímamótaverkefni alfarið norðan heiða. Það sýnir sérstöðu þjóðkirkjunnar sem við erum afar stolt af. Ég er handviss um að verkefnið verði börnum og aðstandendum mikil ánægju blessun og til sóma fyrir þjóðkirkjunnar og N4,“ segir Pétur.