Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
22.03.2024 kl. 08:15
Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 176. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa flestar vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.
Hefurðu hugmynd um hvar myndin dagsins er tekin? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar Akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net
- Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Þetta er Miðgarðakirkja í Grímsey sem byggð var 1867 en brann til kaldra kola árið 2021.
Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR