Mannlíf
Fór á kajak niður ólgandi Glerána – MYNDIR
01.07.2021 kl. 13:12
Gleráin er ekki gul og rauð og græn og blá eins og ort var um árið, þegar Sambandsverksmiðjurnar voru og hétu, heldur moldar- eða kakóbrún í þeim miklu leysingum sem náttúrun býður upp í vikunni. Þessi kajakkappi gat ekki sleppt því skemmtilega tækifæri að bruna niður ána, frá stíflunni á milli Höfðahlíðar og Borgarbrautar niður að ósi.