Fara í efni
Mannlíf

„Ein með ýmsu“ á Akureyri um helgina

Kirkjutröppuhlaupið er alltaf vinsælt. Þesssir spreyttu sig á þeirri þraut fyrir nokkrum árum. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Þrátt fyrir að fjölskylduhátíðinni Einni með öllu hafi verið aflýst verður ýmislegt um að vera á Akureyri um verslunarmannahelgina; ýmsir smærri viðburðir sem rúmast innan þeirra sóttvarnarreglana sem eru í gildi. Þetta kemur fram í tilkynningum frá Vinum Akureyrar, sem standa að Einni með öllu. Þeir vildu ekki leggja árar í bát og gera eins gott úr málinu og hægt er; segja má að haldin verði hátíðin Ein með ýmsu...

Í tilkynningunni er eftirfarandi nefnt:

  • Nóg verður um útivist og hreyfingu fyrir alla aldurshópa en helst má þar nefna fjallahlaupið Súlur Vertical og Hjólreiðahátíð Greifans.
  • Kirkjutröppuhlaupið við Akureyrarkirkju verður á sínum stað og eru allir krakkar velkomnir og mun Hvolpasveitin mæta og hitta krakkana og allir fá gefins glaðning frá Ölgerðinni,
  • AquaZumba með Þórunni Kristínu verður í sundlaug Hrafnagils og paramót á vegum líkamsræktarstöðva Norður AK verður haldið frá föstudegi til sunnudags.
  • Rafhjólaklúbbur Akureyrar verður með Rafhjólaleikana 2021 og AKUREYRI.BIKE götuhjólaáskorunin verður haldin eins og undanfarin ár.
  • Á flötinni fyrir neðan leikhúsið verður komið upp sannkallaðri fjölskylduflöt þar sem Sprell tívolí mun vera með opið til 23:30 alla dagana, Kastalar ehf mæta með Nerfstríð, og hinir sívinsælu Vatnaboltar verða á staðnum. Kjörið að taka með sér teppi og leyfa börnunum að njóta sín í góða veðrinu.
  • Handverks- og hönnunarmessu verður slegið upp í húsi Rauða krossins og hvetjum við fólk til að kíkja við og skoða skemmtilega hönnun og handverk.
  • Húllaverksmiðja með Húlludúllunni verður fyrir krakkana í Kjarnaskógi og markaðsstemning verður á Ráðhústorginu þar sem margt skemmtilegt verður til sölu.
  • Þá er ekki allt upp talið því Sambíóin ætla að vera með Verslótilboð á nýju Space Jam myndina og söfn bæjarins verða opin.
  • Að sjálfsögðu verður opið í einum fallegasta skógi landsins, Kjarnaskógi. Hvað er betra en að njóta með fjölskyldu og vinum í góða veðrinu, smyrja nesti og nýta þessa fallegu náttúruaðstöðu innan bæjarmarka á Akureyri?

Allar nánari upplýsingar er að finna hér - en athygli vakin á að dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar vegna hertra samkomutakmarkana.