Drinni með tónleika á Múlabergi í kvöld
Andri Kristinsson, sem jafnan kemur fram undir listamannsnafninu Drinni, kemur fram á tónleikum á Múlabergi í kvöld. Drinna til halds og trausts eru Ingi Jóhann Friðjónsson, Wolfgang „Wolli“ Sahr og Jón Haukur Unnarsson.
Drinni & The Dangerous Thoughts hefur verið eins iðin við tónleikahald undanfarið og ástandið hefur leyft og kom meðal annars fram á tónlistarhátíð MBS, Mannfólkið breytist í slím, sem haldin var í Gúlaginu í júlí og spilaði þar á aðaltónleikum auk upphitunartónleika á Akureyri Backpackers. Einnig kom Drinni fram ásamt hinum hættulegu hugsunum á Hauststillu á Græna Hattinum fyrr í mánuðinum.
Á tónleikunum í kvöld verða leikin eldri lög í bland við ný. Þeir hefjast stundvíslega klukkan 20:30. Mælt er með kr. 2.000 í aðgangseyri en engum er vísað frá vegna fjárskorts! eins og segir í tilkynningu.