Jólavertíðin hefst með makalausa deginum
Stóru netverslunardagarnir Makalausi dagurinn (Singles Day), Svartur föstudagur (Black Friday) og Stafrænn mánudagur (Cyber Monday) hafa fest sig rækilega í sessi hjá Íslendingum sé tekið mið af reynslu starfsmanna Póstsins, að sögn Óskar Heiðu Sveinsdóttur, forstöðumanns þjónustu og markaða hjá fyrirtækinu.
Makalausi dagurinn, sem varð alþjóðlegt fyrirbæri fyrir tilstilli kínverska verslunarrisans Alibaba, er orðinn alstærsti dagur ársins í netverslun og markar orðið upphaf jólavertíðar Póstsins, segir Ósk Heiða.
Sá makalausi var 11. nóvember – 11.11. – og framundan eru svarti föstudagurinn, sem ber upp á 26. nóvember í ár, og stafræni mánudagurinn, þann 29. nóvember. Heiða Ósk segir að þá gefi netverslanir jafnan góðan afslátt og nefnir að einmitt hafi orðið sprenging í pakkasendingum innanlands undanfarinn áratug, samhliða breyttri kauphegðun. Covid-19 jók netverslun enn frekar og segir Ósk Heiða Póstinn leggja mikla vinnu í að bregðast við auknu álagi á þessum árstíma, bæði í tengslum við áðurnefnd daga og jólin.
Mikið fjör á þessum árstíma
„Það er mikill hasar og fjör hjá okkur í kringum alla stóru netverslunardaga en Makalausi dagurinn var algjör sprengja hjá okkur í fyrra, enda fyrstu covid-jólin og mjög margir að færa viðskipti sín yfir í netverslun fyrst þá. Við lærðum af reynslunni í fyrra og vorum vel undirbúin núna,“ segir Ósk Heiða í tilkynningu frá Póstinum.
„Það var frábært að sjá hvað það var góður gangur í þessu hjá okkur og allt gekk vel. Við vorum með starfsfólk að vinna úr pakkaflóðinu alla helgina og við erum svo sannarlega klár í vertíðina framundan. Við erum að fylla mjög ört á Pakkaport og Póstbox en þau síðarnefndu eru opin allan sólarhringinn alla daga vikunnar. Við hvetjum fólk til að sækja sendingarnar sínar fljótt svo hægt sé að koma sem flestum sendingum út og fleiri geti sótt sendingar sínar fljótt og örugglega. Þá eru góð samskipti við viðskiptavini algjört lykilatriði og virkilega gleðileg endurgjöf sem við erum að fá eftir þessa fyrstu stóru daga vertíðarinnar sem er okkur dýrmæt. Við munum halda áfram að gera okkar allra besta á komandi dögum og hlökkum mikið til,“ segir Ósk Heiða.