Fara í efni
Fréttir

Ekki opnað í dag – hlýtt og hvasst í Hlíðarfjalli

Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli verður ekki opnað í dag eins og til stóð. Í morgun var bálhvasst í fjallinu og hiti um átta gráður. Þar af leiðandi verður lyfturnar ekki settar í gang fyrr en á morgun. Veðurspá er góð fyrir morgundaginn, að því er segir í tilkynningu úr Hlíðarfjalli; vindur á að ganga niður og hitastig verður nálægt frostmarki.