Þór/KA spáð 3. sæti – fær Bryndísi að láni frá Val
Þór/KA er spáð 3. sæti efstu deildar Íslandsmóts kvenna í knattspyrnu, Bestu deildinni. Niðurstaða þess árlega samkvæmisleiks, spár fyrirliða, þjálfara og forráðamanna liða deildarinnar, var birt á kynningarfundi í gær.
Spáin í heild er svona:
- 1. Valur
- 2. Breiðablik
- 3. Þór/KA
- 4. Stjarnan
- 5. FH
- 6. Þróttur R.
- 7. Víkingur R.
- 8. Fylkir
- 9. Keflavík
- 10. Tindastóll
Besta deild kvenna hefst um helgina og stelpurnar í Þór/KA ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Þær sækja Íslandsmeistara Vals heim að Hlíðarenda á sunnudaginn, 21. apríl. Leikurinn hefst kl. 15.00.
Í 2. umferð, um aðra helgi, leikur Þór/KA við FH í Hafnarfirði og fyrsti heimaleikurinn verður síðan gegn Þrótti í 3. umferð, fimmtudaginn 2. maí.
Í vikunni var tilkynnt að Þór/KA hafi samið við knattspyrnudeild Vals um að fá Bryndísi Eiríksdóttur lánaða í sumar. Bryndís, sem er 18 ára, æfði með Þór/KA um liðna helgi og tók þátt í æfingaleik gegn Völsungi.
Á heimasíðu Þórs/KA segir í morgun:
„Bryndís er yngri systir Örnu sem kom til félagsins, einnig á láni frá Val, sumarið 2022. Þær systur eru ekki alveg ókunnar Norðurlandinu enda ættaðar frá Húsavík í föðurætt, en móðir þeirra, Guðrún Sæmundsdóttir, lék með Val og var á meðal fremstu knattspyrnukvenna landsins á sínum tíma.
Bryndís lék með yngri flokkum Víkings, en hefur verið samningsbundin Val frá árinu 2022. Hún á að baki leiki með KH í 2. deild og HK í Lengjudeildinni á lánssamningi frá Val, auk leikja með Val í Lengjubikar, en hefur ekki komið við sögu í leikjum í Bestu deildinni.“
Mynd af heimasíðu Þórs/KA